Matur fyrir vinnandi fólk.

Við tökum við rekstri mötuneyta fyrir fyrirtæki og sjáum um veitingarnar á fundunum ykkar. Maturinn er lagaður á staðnum úr fersku hráefni.

Rekstur mötuneyta

Ykkar eldhús. Okkar kokkar.

Við tökum við mötuneytinu ykkar og rekum það sem sjálfstætt eldhús með metnaðarfullum kokkum.

Einn reikningurÞið fáið einn reikning í lok hvers mánaðar og þurfið ekki að halda utan um reikninga vegna mötuneytisins.
Við mönnum eldhúsiðEngar símhringingar vegna veikinda og engar áhyggjur af því að manna eldhúsið.
Lagað á staðnumFerskur og fallegur matur, lagaður á staðnum úr fersku hráefni.

Þjónustan

  • MorgunverðurHafragrautur með tilheyrandi meðlæti.
  • HádegisverðurRéttur dagsins með meðlæti, nýbakað brauð og veganbar.
  • SalatbarBreytist daglega, með árstíðabundnum grænmetisréttum og heimagerðum dressingum.
  • Kaffi og fundaveitingarEftir samkomulagi.

Frá fyrsta fundi að fyrsta hádegi

  1. HeimsóknVið skoðum aðstöðuna og förum yfir þarfir ykkar.
  2. TillagaÞið fáið skýrt tilboð og áætlun um mönnun.
  3. Fyrsta hádegiVið tökum við rekstrinum án þess að þjónustan rofni.
Maturinn

Vikan í mötuneytinu.

Hver dagur hefur sinn svip, og kokkarnir koma starfsfólkinu á óvart með nýjum réttum í hverri viku.

  1. MánudagurEinfalt og gottÍtalskt, mexíkóskt eða íslenskt.
  2. ÞriðjudagurFiskidagurFiskur í aðalrétt.
  3. MiðvikudagurSparidagurFínni réttir en aðra daga.
  4. FimmtudagurFiskur og eftirrétturFiskidagur, og eftirréttur dagsins að auki.
  5. FöstudagurGötumaturÞemadagur með „street food“.

Gestakokkar koma reglulega í heimsókn og krydda tilveruna.

Verkaskipting

Skýrt hver sér um hvað.

Við sjáum um allt sem snýr að daglegum rekstri eldhússins. Húsnæðið og tækin eru áfram á ykkar höndum.

Á okkar könnu

  • Allt hráefni sem þarf í daglegan rekstur
  • Kokkar og annað starfsfólk í eldhúsi
  • Innra eftirlit
  • Flokkun á umbúðum og almennu sorpi
  • Heilsa og tímaskýrslur starfsfólks í eldhúsi
  • Sumarafleysingar
  • Dagleg vigtun á matarafgöngum úr matsal, með tölum sem eru sýnilegar á hverjum degi

Á ykkar könnu

  • Hiti, rafmagn og viðhald tækja
  • Kaffi, mjólkurvörur og aðrar veitingar eru ekki innifaldar í hádegisverðarþjónustunni nema um það sé samið sérstaklega
Um okkur

Kokkar sem reka mötuneyti.

Á bak við Rétt dagsins stendur Stefán Viðarsson matreiðslumeistari. Hann var yfirkokkur Icelandair hótela og starfaði hjá Icelandair Group í 14 ár áður en hann hóf eigin rekstur.

Með honum starfar hópur metnaðarfullra matreiðslumanna og þjónustufólks. Ánægja starfsfólks liggur í fjölbreytni og góðum mat.

Réttur dagsins er rekinn af SV veitingum sf.

Fylgist með okkur á Instagram →
Fundaveitingar

Sama eldhús. Líka á fundinum.

Kaffi, smurbrauð og léttar veitingar fyrir fundi og námskeið á vinnutíma, frá sama eldhúsi og hádegismaturinn.

Fá tilboð →
  • Morgunfundir Kaffi, brauð og ávextir
  • Hádegisfundir Smurbrauð og léttir réttir
  • Námskeið Veitingar yfir daginn
Fá tilboð

Óskaðu eftir tilboði.

Segðu okkur frá mötuneytinu eða fundinum. Fyrirspurnin er án skuldbindingar. Við svörum innan tveggja virkra daga.

Viltu frekar spjalla? Hringdu í 659 2899

Beint á miðann ↓
01 Fjöldi í mat
120
02 Matseðill
03 Eldhús
04 Tímasetning

RÉTTUR DAGSINS
MÖTUNEYTI

    Nauðsynlegt · Engin skuldbinding · Svar innan 2 virkra daga

    Meðferð persónuupplýsinga: Persónuvernd