Meðferð persónuupplýsinga.
Hér segir frá því hvaða persónuupplýsingar berast okkur í gegnum vefinn, til hvers við notum þær og hvaða rétt þú átt.
Ábyrgðaraðili
SV veitingar sf., kt. 680616-2050, rekur Rétt dagsins og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem berast í gegnum þennan vef. Hægt er að hafa samband í síma 659 2899 eða á sv@svveitingar.is.
Hvaða upplýsingar berast okkur
- Fyrirspurn um tilboð: nafn, fyrirtæki, netfang, símanúmer (ef það er gefið upp) og það sem valið er á miðanum, til dæmis fjöldi í mat og tímasetning.
Vefurinn notar hvorki vafrakökur né vefmælingar.
Til hvers við notum upplýsingarnar
Við notum upplýsingar úr fyrirspurn til að svara henni og útbúa tilboð. Vinnslan byggist á beiðni þinni um að við höfum samband og á lögmætum hagsmunum okkar af því að svara erindum sem okkur berast.
Hverjir fá upplýsingarnar
Við seljum ekki persónuupplýsingar og afhendum þær ekki öðrum en þeim þjónustuaðilum sem þarf til að reka vefinn:
- Web3Forms tekur við því sem sent er af miðanum og kemur því áfram til okkar í tölvupósti.
- Cloudflare hýsir vefinn og sér IP-tölu þess sem heimsækir hann, eins og allir vefþjónar.
- Google Fonts afhendir leturgerðir vefsins. Vafrinn sækir þær beint frá Google, sem sér þá IP-tölu þína.
Þessir aðilar kunna að vinna upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Hve lengi við geymum upplýsingarnar
Við geymum fyrirspurnir ekki lengur en þörf er á til að svara þeim og fylgja þeim eftir. Að því loknu er þeim eytt.
Réttur þinn
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, og andmæla vinnslunni eða fá hana takmarkaða. Sendu okkur línu á sv@svveitingar.is og við bregðumst við.
Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingar um þig getur þú sent kvörtun til Persónuverndar, island.is/s/personuvernd.