Skilmálar

Skilmálar

Söluaðili er Fiskur dagsins / SV veitingar sf., kt. 680616-2050.

Pöntun

Þegar þú hefur lagt inn pöntun á vefnum og gengið frá greiðslu er upphæðin tekin strax út. Varan er afhent á tilteknum tíma og stað. Ekki er hægt að fara í fasta áskrift að svo stöddu, en vonandi verður það klárt fljótlega.

Breytingar á pöntun

Hægt er að breyta pöntun með því að senda tölvupóst á pantanir@fiskurdagsins.is og við bregðumst við eins fljótt og hægt er.

Breytingar á innihaldi

Innihald getur breyst með litlum fyrirvara og þá tilkynnum við það á vefnum. Það gerist helst ef fiskurinn sem við höfðum í huga stenst ekki þær kröfur sem við gerum, eða ef við fáum óvænt betra hráefni í hendurnar. Meðlætið á þó að vera það sama og auglýst var.

Ósóttur Fiskur dagsins

Ef af einhverjum ástæðum er ekki hægt að sækja Fisk dagsins, sendu okkur tölvupóst og við bregðumst við eins fljótt og hægt er, með því að breyta dagsetningu eða senda næsta virka dag.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar í vikunni eftir að pantað er. Fiskur dagsins afgreiðir pantanir á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.

Almennt eru pantanir sóttar í kælipósthólf hjá Pikkoló, sem eru opin allan sólarhringinn, en starfsmenn ákveðinna fyrirtækja geta sótt í lok vinnudags á sinni vinnustöð.

Verð

Öll verð eru með 11% vsk. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram ef valið er að sækja í Pikkoló. Ekkert aukagjald er tekið ef pöntun er sótt á starfsstöð viðkomandi fyrirtækis. Verð geta breyst fyrirvaralaust.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda trúnaði um þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða undir engum kringumstæðum afhentar þriðja aðila nema annað komi sérstaklega fram.

Persónuverndarstefna

Fiskur dagsins ber virðingu fyrir friðhelgi einstaklinga og tekur persónuvernd alvarlega. Við leggjum áherslu á að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf.

Lög og varnarþing

Rísi ágreiningur milli viðskiptavinar og Fisks dagsins vegna skilmála þessara skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.